Mánudagur til munúðar..

mánudagur segiði...já hausverkur helgarinnar er raunverulegur og ekki hægt að gera neitt í því. stjörnuspá dagsins: "þú lendir í aðstæðum sem taka þig á taugum.... " já ok, mátti alveg við því eða þannig :) En ég skemmti mér konunglega með Boggu úti að borða, stútuðum heilli hvítvínsflösku með matnum og þá var klukkan bara orðin 20.30, þið getið ímyndað ykkur restina ;)

En ég var bara róleg á laugardaginn, þurfti að læra og síðan var mamma og Guðjón með matarboð, og þvílíki maturinn, það var gúllassúpa í stórum grýlupotti og síðan voru Tapasréttir frá Tapasbarnum sem er BARA gott...snittur með alls konar dótaríi ofan á, t.d. vorum við að veðja hvað væri ofan á einni, ég sagði að þetta væri pottþétt hrefnukjöt en mamma var alveg á því að þetta væri svartfugl...við erum rosalega kunnugar svona mat..hóst hóst...en við hringdum bara í eigandann og fengum að vita að þetta væri Lundi! ok, mamma var nær og vann veðmálið...en þetta var spes, brauð með Lunda og jarðaberi. En þetta var rosalega flott, þetta var það eina skrýtna sem var í boði ;) Að auki voru spjót með nautakjöti, lambakjöti og kjúkling..(nei ekki á sama spjótinu)...

Ég sé pínu eftir því að hafa ekki farið með stelpunum í bæinn, var frekar mikið slúður eftir það kvöld...alltaf eins, það gerist alltaf eitthvað þegar maður er ekki með, en ég hefði hvort sem er sofið fram á borðið, var dottin útaf um 23.30, búin að horfa á smá Friends í risasjónvarpinu mínu! Þið sem ekki vitið, þá er ég búin að kaupa mér 37" sjónvarp í herbergið mitt, tekur smá tíma að venjast svona bíó í svefnherberginu...og já, ég veit það er ekki hollt að hafa þetta rétt hjá rúminu sínu ;)

Gærdagurinn fór bara í heimsókn á Vellina, súfistaslúður og lærdóm... safna kröftum fyrir komandi viku..Annars er ég núna í tíma, í Bókmenntasögu..já ég er að fylgjast með! ;) verið að tala um Plató, Aristóteles og Jesú, náði því alveg :) ég kinka bara kolli á viðeigandi stöðum..

En elsku Halla mín, takk fyrir að vera svona dugleg að kommenta og vera svona ofurljúf við mig, þú ert sætust og ég sakna þín ógurlega mikið! Hlakka svo til að fá þig í bæinn um páskana...Valzy, já ég ætti að vera búin að læra e-ð af þér, en þetta er bara ekki meðfætt hjá öllum ;) , Lísa mín, ógurlega langt síðan við spjölluðum, vonandi gengur allt vel hjá ykkur og þið að blómstra í Horsens, sakna þín ;* og kúlunnar megasætu!

Annars gengur rosalega vel í vinnunni, frábært fólk og þetta á mjög vel við mig, tíminn flýgur bara áfram þegar svona mikið er að gera...það eru t.d. alltaf föstudagar hjá mér..ekki slæmt það, en kannski þegar ég dey "Elva Brá Jensdóttir- lifði á föstudögum!" hmmm ekki svo gott kannski...

Ég dreymdi hesta í nótt, það gerist svona 2svar (svo ég muni) í viku að ég dreymi hesta...hélt fyrst að mig langaði bara svona mikið á hestbak, alltaf á leiðinni...en síðan komst ég að því að hestar eru oft fyrir því villta í undirmeðvitundinni, því kynferðislega! hahahaha... ok...

að því sögðu ætla ég í alvöru að fara að fylgjast með bókmenntasögu,

Bleble í bili ;) Elva "með villta tryllta undirmeðvitun"


Hæ Hó! :D

Látum okkur nú sjá...

Á að vera að gera verkefni fyrir íslenskt mál að fornu II, sem á að skila í dag!  en er upptekin við að blogga ;)

Á að vera að gera verkefni fyrir beygingar- og orðmyndunarfræði, sem á að skila á fös. en er upptekin við að blogga..

Á að vera að gera verkefni fyrir nýtt mál, ný menning, sem á að skila á fös, en er upptekin við að blogga.. 

Vá hvað ég væri til í að það væri föstudagur og þessi verkefni að baki,  ég er ekki í stuði fyrir þetta, það var glampandi sól í dag og ég er bara komin í sumarfílinginn! Ég hlakka svo til að fara til Krítar í ágúst..meeeeen... vorum að panta “sólarlandafatnað” frá Victoria´s secret og damn hvað við verðum heitar! Aumingja þið sem eruð ekki að fara með okkur!

Annars fer að koma tími á sumarbústað, finnst ykkur það ekki? Með tilheyrandi pottaferðum, bjór og trivial! Sérstaklega ef veðrið er að skána svona J  

Á föstudaginn er ég að fara út að borða með Boggu á Ítaliu, mmmm!  (maturinn þá, ekki Bogga) hehe þó hún sé algjört æði.. síðan er stefnan tekin á vit ævintýranna ;)  

*Ég auglýsi hér með eftir nintendo tölvu (gömlu gerðinni) ásamt Super Mario Bros leiknum..damn, hvað mig langaði allt í einu í hann, það sem maður gat legið í þessu fyrir ca. 17 árum!! Haha ;)  

*Ég auglýsi einnig eftir hugsanalesara! Greiðslugeta: ekki svo mikil.. ...

var að fá vinning á Núinu, fékk 1000 kr. afslátt af brasilísku vaxi..ekki slæmt! Hehehe 

kveð í bili..p.s. Ætli það sé hollt að horfa svona mikið á Friends! Ég er fíkill...   


Kominn tími á nýtt blogg eða hvað?

 

Það er búið að vera brjálað að gera hjá mér, dagarnir líða eins og skot og strax að koma önnur helgi!

Á morgun er árshátíð Mímis og verður hún haldin með stæl í Reykjavíkurakademíunni, fyrirpartýið byrjar kl. 16.30!...Það er ekki fyrir vinnandi fólk að byrja svona snemma, en ég er búin að vinna 16.30-17 svo ég hendist heim að gera mig til, ég næ kannski einum bjór í partýinu og svo beint upp í rútu! Bryndís sæta er að halda upp á 25 ára afmælið sitt sama kvöld, svo við erum að spá í að kíkja þangað seinna um kvöldið.

En...ég auglýsi hér með eftir daðurdrós til að kenna mér kúnstir þar sem ég er búin að komast að því að ég er frosin! Hegðun mín einkennist af kjánalegum, meðvituðum hreyfingum og orðum sem gefa ENGAN veginn það í ljós að maður hafi áhuga...ég gruna samt að viðkomandi viti það en ég er að reyna að vera eins köld og ég get, svo hann fatti sko EKKI að ég sé skotin...hversu brenglað er það?? En þar sem ég er van- ..eins og ég sagði ykkur stelpur um daginn, þá er ég endanlega búin að sprengja leim-skalann hahaha, ég held ég verði ekkert meira leim í bili svo það er kannski bara ágætt, þá veit ég að það fer bara uppávið hér eftir J p.s. svo það fari ekkert á milli mála, með því að segja að ég sé van- þá er ég ekki að líkja mér við sendiferðabíl! Heldur er þetta forliðurinn á undan –gefin eða hvaða orð sem þið viljið setja á eftir, ég er van- yfir höfuð núna!

Að öðru... Þegar ég var að keyra í skólann áðan var fínasta veður, ég lagði bílnum og steig út ..og ÞÁ kom bylur! Þegar ég kom inn í skólann var ég HVÍT! Veðrið lagaðist að sjálfsögðu þegar ég var komin inn...þegar tíminn var búinn, gekk ég út og hvað haldiði?? Jú,jú, það fór sko að snjóa!...já ok VEI..þetta var svona eins og í teiknimyndunum þegar rigningarský eltir einhvern ólukkulegan! Búhú!

En ég ætla að fara að byrja að vinna...hressa mig við og hlakka til morgundagsins..þrátt fyrir þónokkur vonbrigði í dag (sem ég ætla ekkert að segja neinum nema útvöldum!)

 

Bleble..

Elva “hin frosna, hvíta kona”.


Miðvikudagur til magakrampa!

Mér er illt í maganum! Vona að ég sé ekki að fá gubbupest..hún er að ganga, en hún má alveg fara framhjá mér..

En já, ég er byrjuð að vinna alla daga á Morgunblaðinu frá 12-17, það er mjög fínt, er ennþá að kenna stundum á morgnana og síðan er yfirleitt skólinn frá 10-11.30, svo ég veit ekki alveg hvenær ég ætla að læra, en ég finn það út...ég er ekkert svakalega þekkt fyrir að læra á kvöldin ;)

Helgin var fín...

Fös: Fór með gumma, Áslaugu og Valzy í bæinn og hitti alls konar misskemmtilegt fólk..t.d. gamlan vin hans Dabba sem ég var með þegar ég var 16, hann var EKKI skemmtilegur. Ég hitti líka strák sem var með mér í sálfræði, hann var heldur ekkert skemmtilegur...en ég hitti annað skemmtilegt fólk J Síðan var Garðar (sem leigir kjallarann hjá okkur) svo yndislegur að koma og sækja okkur í bæinn, þó hann væri að fara að vinna morguninn eftir.

Lau: Fór í partý með Lísu og Karen systur hennar uppi í Breiðholt og þar fengum við þau yndislegu ráð til að næla sér í karlmann að kyssa hann undir punginn, þá er hann okkar! Konan sem gaf þessi ráð sagði að það virkaði, en reyndar væri hún búin að vera með 1500-1600 mönnum svo hún sagði okkur að taka þessu með varúð! HAHAHA.... Einnig heyrði ég í þessu sama partýi að það væri e-ð til sem héti „wound-sex“..dóttir hennar hafði sagt henni frá þessu og ég hélt ég myndi missa andlitið þegar ég heyrði hvað þetta er, án þess að segja of mikið get ég allavega sagt að þetta felur í sér að konan (eða kk..)  sker stórt sár á lærið á sér eða e-n annan líkamspart og hinn aðilinn notar það...! ég trúi ekki að ég sé að skrifa þetta hérna, ég trúi samt enn síður að þetta sé algengt!

Anyway, eftir partýið kíktum við aðeins í bæinn, ekkert fréttnæmt þaðan..end of story.. J

Ég hefði viljað hitta Hr. Hunk en ekkert sást til hans.....en koma dagar, koma ráð ;)

Ætla að skottast í vinnuna, mikið að gera fyrir helgina ..

Bleble huns ;)


Ekki móðgast

Ég er að vinna í því að setja fleiri á blogglistann, bæði fullorðna og börn svo ekki halda að ég hafi gleymt ykkur :) allt í vinnslu sjáiði til ;)

Ætla að skríða í háttinn, fyrsti vinnudagurinn á morgun! úlala..smá stress, en þetta verður í lagi, segi ykkur frá því síðar.. kossar og knús :*

bleble ;)


Heil og sæl !!

 

Það er margt búið að gerast síðan ég var að blogga síðast, til dæmis er ég farin að kenna í forföllum og var að fá aðra vinnu sem ég er mjöööög spennt fyrir! Þurfti að taka próf til að fá vinnuna,  ;)  Það verður nóg að gera á næstunni hjá mér, þar sem ég verð að kenna f.h og í tímum í skólanum og síðan fer ég í nýju vinnuna frá 12-17 en eitthvað lengur á föstudögum.. en það er gaman þegar nóg er að gera..

Fór á þorrablót með skólafélögunum á laugardaginn, fámennt en góðmennt, borðaði bara harðfisk og rúgbrauð, sleppti alveg hákarlinum en ég gerði heiðarlega tilraun laugardaginn áður til að verða fullorðinn Íslendingur og smjatta á hlandlyktandi fisk! Mér var sagt ef ég gæfi honum séns og velti honum uppí mér myndi ég alveg kunna að meta hann...jáhh einmitt! Ojjbaraaaa!! Hann er svo ógeðslegur að það er ekki skrýtið að fólk þurfi brennivín til að drepa bragðið af honum! Hehe En þetta kvöld var mjög skemmtilegt, fór reyndar aðeins of seint að sofa, fórum í eftirpartý fram á morgun, sem er ekki sniðugt, maður hefur ekki orku í svona lagað lengur, orðin allt of gömul..

Er að fara til Krítar í ágúst með Evu, Lóu, Önnu og Snæa, í 2 vikur, verður algjörlega frábært en verst hvað það er langt þangað til! Hálft ár...en hef þá allavega eitthvað að hlakka til og mér sýnist alveg verða nóg að gera hjá mér þangað til.

Ég fór í frábæra ferð um daginn með Evu og Ernu, skelltum okkur á EM í handbolta í Þrándheimi! Eins ótrúlega og það hljómar! En það var frábært! Og ég á videoupptökur sem eru ómetanlegar, og hyggst geyma þær á góðum stað þangað til í brúðkaupi stelpnanna, þá held ég óvænta sýningu!! Haha neee...kannski ekki J en við munum ekki gleyma þessari ferð, að sjá strákana í landsliðinu (ekki slæmt) og djamma með landsliðinu frá Slóvakíu, þá voru þeir dottnir út og fóru bara að djamma, frekar myndarlegir sko en engan veginn nógu sætir fyrir íslenskar stelpur! ;) 

bleble í bili.... ;)

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband